Allt að 75% fasteignalán á Spáni
Í dag bjóðast viðskiptavinum Spánarheimila fjármögnunarmöguleikar sem geta gert fasteign á Spáni að raunhæfari kost
fyrir fleiri Íslendinga.
- Allt að 75% fasteignalán á láni
- Um 4% óverðtryggðir vextir
- Allt að 30 ára lánstími
- Svar um lán getur fengist á aðeins 3 dögum
Persónuleg aðstoð í gegnum allt ferlið
- Greiðslumat á Spáni
- Þýðingar allra nauðsynlegra fjárhagslegra gagna sem þarf í greiðslumat
- Öll samskipti við spænska lánveitendur og skjalafrágangur
- Að finna draumaeignina sem hentar þínum óskum og fjárhagsramma
Markmið okkar er að gera ferlið einfalt, öruggt og persónulegt fyrir íslenska kaupendur.
Nánari lánaskilmálar
Vextirnir eru óverðtryggðir og eru yfirleitt með fasta vexti fyrstu 3 til 5 árin og eftir það eru þeir breytilegir á þann hátt að þeir miðast við evrópuvexti Euribor og síðan vaxtaálag bankans sem liggur um 1,7 til 2,0%. Í maí 2025 eru Euribor vextirnir 1,88% og fara lækkandi.
Lánstíminn er allt að 30 ár en miðað er við að síðasta gjalddagi lánsins sé við 75 ára aldur og því ákvarðast lánstíminn eftir lífaldri þess yngsta í lántakenda hópnum.
Veðsetningarhlutfall er allt að 75% lán af nettó kaupverði. Við fasteignakaup á Spáni þarf ávalt að reikna með að við kaupverðið bætist lögum skv. 10% skattur og alveg um 3 – 5% í önnur tilfallandi gjöld eða samtals allt að 15%.
Þumalputtatreglan við greiðslubyrði á 100.000 evru láni til 30 ára með um 4% óverðtryggðum vöxtum eru 477 evrur eða rétt um 69.000 kr per mán (Gengið 15.05.26).
Stundum bjóða lánveitendur upp á líftryggingarlán þá þannig að baki láninu liggi líftrygging — það þýðir þá að ef lántakandi fellur frá á lánstímanum þá greiðist lánið upp með líftryggingunni.
Af hverju við?
Spánarheimili hefur aðstoðað Íslendinga við fasteignakaup á Spáni í yfir 20 ár. Við erum með skrifstofur bæði á Íslandi og á Spáni og leggjum áherslu á persónulega þjónustu, traust og fagleg ráðgjöf í gegnum allt ferlið.
Við vinnum með fjölmörgum traustum byggingaraðilum og samstarfsaðilum á Costa Blanca og Costa Cálida svæðinu og höfum aðgang að fjölbreyttu úrvali fasteigna — einnig eignum sem eru ekki alltaf auglýstar á vefnum okkar.
Hvort sem þú ert að leita að íbúð, sumarhúsi, golfvillu eða fjárfestingareign getum við aðstoðað þig að finna eign sem hentar þínum óskum, þörfum og fjárhagsramma.
Bókaðu fría einkakynningu
Bókaðu einkakynningu hjá sérfræðingum Spánarheimila á Íslandi eða á Spáni. Þar förum við yfir:
- Fjármögnun og lánskjör
- Ferlið við fasteignakaup á Spáni
- Rekstrarkostnað og annað sem gott er að vita
- Finnum eignir sem henta þínum óskum og fjárhagsramma
- Þjónustu eftir kaup
Engin skuldbinding — aðeins létt og persónulegt spjall.