Meira en fasteignakaup
Aðgangur að samfélagi fríðinda og skemmtunar
Allir viðskiptavinir Spánarheimila sem hafa keypt fasteign á Spáni verða sjálfkrafa meðlimir í Vildarklúbbi Spánarheimila.
Vildarklúbburinn er lokað samfélag þar sem markmiðið er að veita viðskiptavinum okkar áframhaldandi þjónustu, upplýsingar og völd fríðindi, bæði á Spáni og Íslandi eftir fasteignakaup.
Klúbburinn er jafnframt upplýsinga- og fræðsluvettvangur til okkar vildarvina samhliða því að mynda tengsl manna á milli þar sem við höldum reglulega hittinga yfir árið. Við tölum oft um að vera í Spánarheimilis fjölskyldunni þar sem meðlimir koma saman, tengjast og njóta lífsins í sólinni.

Vildarkjör sem gera gæfumuninn
Meðlimir Vildarklúbbs Spánarheimila njóta fjölbreyttra vildarkjara á þjónustu og afþreyingu, meðal annars:
• Afslættir á golfi
• Sérkjör á bílaleigu
• Afsláttur af flugvallarakstri og skutli
• Bílastæðakjör við Keflavík
• Afsláttur á völdum veitingastöðum
• Aðgangur og afsláttur að deilibílum á Spáni
• Afsláttur af ýmissi þjónustu Spánarheimila eins og þrif eigna ofl.
Fríðindin eru valin með það að markmiði að gera dvölina og lífið á Spáni þægilegra, hagkvæmara og skemmtilegra.
Aðgangur og Vildarklúbbskort
Við fasteignakaup fá allir viðskiptavinir afhent Vildarklúbbskort sem veitir aðgang að fríðindum og vildarkjörum klúbbsins.
Kortið er lykillinn að þjónustu og tilboðum sem einungis eru í boði fyrir viðskiptavini Spánarheimila.
Aðild að Vildarklúbbnum er bundin við eignarhald fasteignar sem keypt er í gegnum Spánarheimili og gildir á meðan viðskiptavinur á eignina. Ef eigning er seld og ný fasteign keypt í gegnum annan aðila fellur aðild að Vildarklúbbi Spánarheimila niður.
Upplýsingaveita
Starfsfólk Spánarheimila heldur utan um vildarklúbbssíðuna, miðlar upplýsingum og fróðleik og sér um samskipti við meðlimi í gegnum vildarsíðuna.
Meðlimir eru jafnframt hvattir til að deila reynslu, ábendingum og hagnýtu efni sín á milli þar inni.