Blogg og Blogg og

Blogg og

fréttir

24 maí 2026
Elche CF spilar í efstu deild á næsta tímabili
Elche CF spilar í efstu deild á næsta tímabili "La Liga"

Elche CF mun áfram leika í efstu deild spænska fótboltans, La Liga, á næsta tímabili – frábær tíðindi fyrir stuðningsmenn félagsins og alla sem fylgjast með liðinu.

Eftir krefjandi og oft á tíðum spennuþrungið tímabil hefur Elche tryggt sér áframhaldandi veru meðal bestu liða Spánar og endar í 15. sæti deildarinnar. Það verður að teljast afar góður árangur í einni sterkustu deild heims þar sem risar á borð við Barcelona og Real Madrid hafa lengi ráðið ríkjum.

Tímabilið hjá Elche hefur verið upp og ofan, með bæði sterkum köflum og erfiðum tímum. Liðið hefur þó sýnt mikinn karakter, samheldni og baráttuvilja þegar mest á hefur reynt. Að halda sæti sínu í La Liga er sérstaklega mikilvægt fyrir félag sem er að festa sig aftur í sessi í efstu deild og hefur þurft að berjast gegn fjárhagslega sterkari félögum með mun stærri leikmannahópa.

Lokaleikur tímabilsins gegn Girona á útivelli í gær, 23. maí var sannkallaður úrslitaleikur með gríðarlega miklu undir.
Girona þurfti sigur til að halda sæti sínu í deildinni á meðan Elche vissi að jákvæð úrslit gætu tryggt áframhaldandi sæti í efstu deild. Spennan var mikil frá fyrstu mínútu og úrslitin réðu miklu fyrir bæði félögin. Nú er ljóst að Girona fellur niður í næstefstu deild, Hypermotion á meðan Elche heldur áfram í efstu deild á meðal þeirra bestu.

Elche hefur á að skipa skemmtilegu og vel spilandi liði með marga spennandi leikmenn sem hafa vakið athygli á tímabilinu. Félagið hefur byggt upp lið sem leggur áherslu á samspil, vinnusemi og baráttugleði – eiginleika sem hafa skilað sér í mikilvægum stigum þegar mest á hefur reynt. Að halda sæti sínu í einni mest krefjandi deild heims er því mikið afrek og gefur stuðningsmönnum ríka ástæðu til bjartsýni fyrir næsta tímabil.

Fyrir þá sem vilja upplifa stemninguna á heimaleikjum Elche á eigin skinni má einnig minna á að Spánarheimili geta aðstoðað sína vildarvini við að útvega miða á heimaleiki félagsins á næsta tímabili – einstakt tækifæri til að upplifa spænska boltann í sinni tærustu mynd en Elche er í aðeins um 25 mínutna fjarlægð frá flugvellinum í Alicante og 40 mínutur frá Torrevieja borg. 

21 apr 2026
Uppbyggingu á hafnarsvæðinu í Torrevieja að ljúka
Uppbyggingu á hafnarsvæðinu í Torrevieja að ljúka

Nýtt hafnarsvæði í Torrevieja er að taka á sig lokaútlit.
Undanfarin 2-3 ár hafa íbúar og gestir Torrevieja orðið vitni að mikilli uppbyggingu hafnarsvæðisins í miðbænum. Nú er lokahnykkurinn hafinn og ef áætlanir ganga eftir má búast við að nýja hafnarsvæðið verði að mestu tilbúið í byrjun sumars 2026.

Þetta verkefni er eitt stærsta endurbóta- og skipulagsverkefni borgarinnar á undanförnum árum og markmiðið er að tengja hafnarsvæðið betur við miðbæinn, skapa aðlaðandi útivistarsvæði og efla þjónustu bæði fyrir íbúa og ferðamenn. Segja má að verkefnið hafi verið mjög umdeilt á sínum tíma, ekki aðeins vegna mikils kostnaðar heldur einnig vegna rasks og margir rekstraraðilar töldu að á meðan framkvæmdir væru í gangi væri ekki hægt að starfa almennt. Þú hefur vakið máls á öðru máli og í dag er mikil samstaða og stolt sem einkennir þessar miklu breytingar, þar sem við vorum ekki að tjalda í eina nótt...

Hvað felst í verkefninu?
Framkvæmdirnar hafa farið fram í nokkrum áföngum og ná yfir stórt svæði frá Acequión-ströndinni að Levante-bryggjunni. Eins og er er eftirfarandi unnið að:
- Fullkominn aðgangur að hafnarsvæðinu og tenging við nýjan gangstíg og þjónustusvæði
- Setja upp nýja lýsingu og bekki
- Bæta gönguleiðir og opin svæði fyrir almenning
- Fegra umhverfið með gróðri og landmótun sem fellur betur að strandlengjunni
- Samræma og samþætta fyrri verkefni við lokahnykkinn, svo sem að hluta til rafvæðingu hafnarinnar og endurbætur á bryggjunum

Allt þetta er gert til að gera svæðið aðgengilegra fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, með áherslu á opið og líflegt hafnar- og strandsvæði þar sem fólk getur notið veitingastaða, verslunar, viðburða og útivistar.

Nýtt miðsvæði fyrir borgina.
Ein af stærstu breytingunum er að gamla svæðið meðfram Paseo de la Libertad hefur verið endurbyggt í stórt fjölnota útivistarsvæði nálægt sjónum.
Þar verður pláss fyrir útimarkaði, viðburði og aðra afþreyingu, en bílaumferð verður takmörkuð til að auka öryggi og lífsgæði á svæðinu.
Það er þó vert að taka fram að bílakjallari hefur aukið mikið magn bílastæða á svæðinu og hefur þegar verið opnaður.

Hvað þýðir þetta fyrir fólk á svæðinu?
Fyrir alla sem búa eða dvelja í Torrevieja og nágrenni mun nýja hafnarsvæðið hafa jákvæð áhrif á daglegt líf. Til dæmis:
- Fleiri aðlaðandi göngu- og útivistarsvæði allt árið um kring
- Aukið framboð á þjónustu, veitingastöðum og viðburðum
- Sterkari og hreinni miðbær sem laðar að fleiri gesti
- Hækkun á verðmæti fasteigna í nágrenninu

Svæðið hefur breyst verulega á undanförnum árum og þegar framkvæmdum lýkur verður hafnarsvæðið eitt helsta aðdráttarafl borgarinnar og samkomustaður, en við hvetjum alla til að drífa sig og kíkja (og leggja í nýja bílakjallaranum) og sjá hvernig allt kemur saman.

21 apr 2026
Nýjar reglur um skilagjald einnota umbúða á Spáni
Nýjar reglur um skilagjald einnota umbúða á Spáni

Nýjar reglur um skilagjald einnota umbúða á Spáni.
Margir Íslendingar á Spáni hafa undrað sig á því í gegnum árin hvers vegna ekki sé hægt að skila einnota umbúðum gegn gjaldi á Spáni. Og á meðan endalaust er verið að berjast við betri umgengni, sorp og skil á rusli ofl. að þá höfum við mörg klórað okkur í hausnum með þetta skeytingarleysi.
Enn nú skal gera betur - Spánn er að taka upp svipað skilagjaldskerfi og við þekkjum svo vel frá Íslandi.  En hvernig mun þetta virka í raun ?

Spánn er að innleiða nýtt skilagjaldskerfi fyrir drykkjarumbúðir sem líkist því sem við höfum haft á Íslandi í áratugi. Kerfið mun líklega taka gildi seint í lok 2026.
Algengt skilagjald verður líklega um 0,10 evrur (15 kr.) fyrir hverja flösku eða dós eða sambærilegt og á Íslandi.

Af hverju er Spánn að gera þetta núna ?

Spánn hefur verið langt á eftir Norðurlöndunum í endurvinnslu á drykkjarumbúðum almennt. Má þar helst nefna að Spánn hefur endurunnið um 40% til 50% af flöskum og dósum á meðan evrópusambandið setur markmið um 70% eða meira. 
Þess má geta að Ísland hefur haft skilagjaldskerfi síðan 1989 og í dag er um 90% af flöskum og dósum skilað á Íslandi.

Það má því áætla að með þessari breytingu muni margt breytast til hins betra á Spáni. Dósir og flöskur sem hafa legið út um allt, á vegum, göngustígum, við samkomustaði, íþróttasvæði ofl. munu væntanlega heyra sögunni til . . . 

Viva Espana

15 jan 2026
Spænskir fasteignadagar í Smárabíó - Smáralind 24. og 25. janúar á milli 12-16
Spænskir fasteignadagar í Smárabíó - Smáralind 24. og 25. janúar á milli 12-16

Enn og aftur stöndum við fyrir glæsilegri fasteignakynningu á eignum á Spáni en að auki verður nýjung hjá okkur þar sem fulltrúi MedSea sem er söluaðili fasteigna í Dubai verður líka á svæðinu. 

Kynningin verður á glæsilegu og endurnýjuðu svæði Smárabíó í Smáralind á milli kl. 12.00 og 16.00 laugar og sunnudag 24. og 25. Janúar. 

Við munum sýna kvikmynd um eignir, lífið á Spáni og viðtöl við fólk á svæðinu sem tekur um 40 mínutur í bíósal 5 og á heila tímanum verðum við með spurt & svarað þar sem áhugasömum gefst kostur á að spyrja um efni myndarinnar ásamt öðru.

Fulltrúar byggingaraðila sem eru sérfræðingar koma frá Spáni og kynna nýjungar í byggingum, ný svæði og áherslur. 

Sölufulltrúar okkar á Spáni verða á svæðinu ásamt okkar fólki frá skrifstofunni okkar í Hlíðarsmára. 

Fulltrúar frá Sumarhús á Spáni kynna leigueignir og aðra möguleika tengda eignaleigu og kynna "leigutryggingu" sem hefur slegið í gegn hjá kaupendum. 

Að auki verður vínkynning ásamt öðrum léttum veitingum í boði. 

Við verðum með skemmtilegan gjafa golfleik þar sem hægt verður að vinna glæsilega vinninga. 

Þetta verður sannkölluð draumakynning fyrir þá sem langar til þess að vita allt um fasteignakaup á Spáni, leigumöguleika, upplýsingar um skóla, upplýsingar um svæðin og já, upplýsingar um allt er viðkemur lífinu á Spáni . . .
Hlökkum til að sjá ykkur !

2 jan 2026
Ný umferðarlög á Spáni vegna neyðarljósa í ökutæki frá og með 1. Janúar 2026
Ný umferðarlög á Spáni vegna neyðarljósa í ökutæki frá og með 1. Janúar 2026

Frá og með 1. janúar 2026 eru öll ökutæki sem eru skráð á Spáni skyldug til að hafa V16 neyðarljós í ökutækinu í stað hefðbundinna viðvörunarþríhyrninga vegna ökutækja sem stöðvast vegna bilunar eða slyss.

V16 neyðarljósið gefur frá sér 360 gráðu blikkandi gult ljós og er hannað þannig að hægt sé að setja það á ökutækið, yfirleitt á þakið (segull), án þess að ökumaður þurfi að yfirgefa bílinn. Með þessu vilja spænsk umferðaryfirvöld auka öryggi vegfarenda og draga úr hættu á slysum við vegkantinn.

Að sögn DGT (spænska umferðarstofa) er markmið reglunnar að fækka alvarlegum slysum og dauðsföllum en á hverju ári látast um 25 manns á Spáni eftir að hafa stigið út úr ökutæki sínu til að setja upp viðvörunarþríhyrninga. Með V16 neyðarljósinu er hægt að setja það td. á þak ökutækisins, innan úr bílnum sem dregur verulega úr þeirri áhættu.

Reglan gildir um fólksbíla, sendibíla, vörubíla og rútur sem eru skráðar á Spáni. Mótorhjól og létt bifhjól eru almennt undanþegin.
Erlend skráð ökutæki sem eru í tímabundinni heimsókn á Spáni þurfa ekki að fylgja reglunni og mega áfram nota öryggisbúnað samkvæmt reglum heimalands síns, sbr. viðvörunar þríhyrnings.

V16 neyðarljósið verður að vera samþykkt af DGT og tengt við umferðarkerfi landsins. Það er því mikilvægt að kaupa rétt ljós sem eru viðurkennd en mikið er um "ólögleg" ljós til sölu. Þetta má staðfesta td. á heimasíðu DGT (spænska umferðarstofan)

Ökumenn sem ekki hafa samþykkt V16 vöruljós í ökutæki sínu frá 1. janúar 2026 geta átt yfir höfði sér sektir sem eru almennt um 80 evrur þó hærri sektir geti átt við ef merking er röng eða ófullnægjandi.

Semsagt - hefðbundnir viðvörunarþríhyrningar eru því ekki lengur löglega viðurkenndir fyrir ökutæki sem eru skráð á Spáni.

Heimasíða DGT - upplýsingar um viðurkennd neyðarljós

Phone Mail