Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Nýbyggðar íbúðir á þriðju hæð í Edificio ZOA I, nýju íbúðaverkefni með samtals 26 íbúðum í Torrevieja.
Lausar íbúðir eru með 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi, með innanmál á bilinu 41,02 m² til 54,82 m².
Allar íbúðirnar eru með einkaverönd, á bilinu 3,30 m² til 6,16 m², sem veitir aukið útirými.
Heildarstærð íbúðanna, að meðtöldum hlutfallslegum hluta sameignar, er á bilinu 50,07 m² til 66,29 m². Í húsinu er sameiginleg líkamsræktaraðstaða og þakverönd með nuddpotti fyrir íbúa.
Möguleiki er á að kaupa bílastæði í bílakjallara og geymslu sérstaklega.
Verð frá 185.000 € til 210.000 €.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is