Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Þessa íbúð á jarðhæð í Torrevieja, í aðeins nokkurra mínútna göngufæri frá hinni vinsælu Playa del Cura strönd.
Íbúðin er 153 m² að stærð samkvæmt fasteignaskrá, þar af 135 m² nýtanlegt rými. Skipulagið er hagnýtt og vel útfært. Austur- og vesturátt tryggir góða birtu allan daginn og skapar bjart og rúmgott andrúmsloft í öllum rýmum heimilisins.
Innan dyra er rúmgóð stofa og borðstofa, fullbúið sjálfstætt eldhús, fjögur stór svefnherbergi með náttúrulegri birtu og tvö fullbúin baðherbergi, þar af hefur annað þeirra nýlega verið endurnýjað. Einn helsti kostur eignarinnar er einkaverönd/inngarður sem er um 25 m² að stærð, fullkomið útisvæði fyrir slökun, útiborðstofu, leiksvæði eða sem aukið geymslurými.
Eignin er í mjög góðu ástandi, laus við rakavandamál og tilbúin til innflutnings. Hún er einnig seld hálfmubluð.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is