Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Nýtt íbúðaverkefni staðsett við Zoa-götu, á horni Paz-götu, í Torrevieja. Verkefnið samanstendur af 26 íbúðum á mismunandi hæðum.
Lausar íbúðir á jarðhæð eru með 1 eða 2 svefnherbergjum og 1 baðherbergi. Innanrými íbúðanna er á bilinu 54,20 m² til 61,25 m² og býður upp á mismunandi valkosti eftir þörfum kaupenda.
Íbúðin með 1 svefnherbergi er með 7,10 m² einkaverönd, tilvalda til að njóta útiveru.
Íbúðirnar með 2 svefnherbergjum eru 54,20 m² og 57,40 m² að innanmáli.
Möguleiki er á að kaupa bílastæði í bílakjallara og geymslu sérstaklega.
Verð frá 185.000 € til 235.000 €.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is