Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Nýbyggðar íbúðir á annarri hæð (fyrstu hæð yfir jarðhæð) í Edificio ZOA I, nýju íbúðaverkefni með samtals 26 íbúðum í Torrevieja.
Lausar íbúðir eru með 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi, með innanmál á bilinu 41,02 m² til 65,27 m², sem býður upp á mismunandi stærðir og skipulag.
Allar íbúðirnar eru með einkaverönd, á bilinu 3,30 m² til 7,52 m².
Heildarstærð íbúðanna, að meðtöldum hlutfallslegum hluta sameignar, er á bilinu 50,07 m² til 80,57 m². Í húsinu er sameiginleg líkamsræktaraðstaða og þakverönd með nuddpotti fyrir íbúa.
Bílastæði og geymslur eru í boði gegn aukagjaldi.
Verð frá 179.000 € til 199.000 €.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is