Spánarheimili kynnir: Glæsileg einbýlishús á einni hæð nálægt La Serena golfvellinum í Los Alcázares. Kjarninn samanstendur af 6 húsum sem eru á bilinu 112,40 m² til 122,38 m², staðsett á lóðum sem eru frá 217 m² upp í 309,02 m². Húsin eru með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum og bjóða upp á vel skipulögð og hagnýt rými.
Innra skipulagið felur í sér opið rými þar sem stofa og borðstofa renna saman, með beinum aðgangi út á verönd sem skapar mjúka tengingu milli inni- og útisvæða. Að auki fylgir hverri eign einkasundlaug, bílastæði innan lóðar og þaksvalir sem henta vel til að njóta góðs veðurblíðunnar allt árið um kring.
Verð frá 453.000 € upp í 549.000 €.
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan kost fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is