Spánarheimi kynnir: Nýtt glæsilegt verkefni af raðhúsum á tveimur hæðum hefur verið hannað til að bjóða upp á hámarks þægindi og lífsstíl. Hvert hús býður upp á 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi, með byggingarfleti frá 119 m² upp í 153,25 m², með rúmgóðum og björtum rýmum.
Á aðalhæðinni er eldhús sem er opið við stofu og útgengt út á rúmgóða verönd með einka sundaug og útsýni yfir golfvöllinn. Einnig er eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi á hæðinni. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi. Af gangi er síðan gegnið út og farið upp á einkaþaksvalir með útsýni yfir golfvöllinn og eins til sjávar.
Einnig fylgir kjallari þar sem hægt er að útbúa rúmgóðan bílskúr eða nýta á ýmsan hátt.
Verð frá 350.000 € upp í 547.000 €
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is