Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegar íbúðir á fyrstu hæð í nýbyggingarverkefni í Los Alcázares, í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni.
Íbúðirnar eru með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, og byggt flatarmál þeirra er á bilinu 70,00 m² til 98,35 m². Í boði eru mismunandi stærðir og skipulagslausnir sem henta fjölbreyttum þörfum og lífsstíl.
Íbúðirnar eru með einkaveröndum, með samtals 18,70 m² til 32,55 m² útisvæði, sem eru tilvaldar til að njóta útiveru, slaka á eða eiga notalegar stundir undir Miðjarðarhafssólinni. Sumar íbúðirnar eru með veröndum bæði að framan og aftan, sem veitir aukna möguleika á að nýta útisvæðin á fjölbreyttan hátt.
Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og bílastæði, sem tryggir aukin þægindi og meira geymslupláss.
Verð frá 339.000 € til 399.000 €.
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan kost fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is