Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Þetta glæsilega nýbyggingarverkefni býður upp á nútímalegar íbúðir í aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni.
Íbúðirnar á jarðhæð eru með 2 eða 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, og byggt flatarmál þeirra er á bilinu 70,00 m² til 93,39 m². Í boði eru mismunandi skipulagslausnir sem henta fjölbreyttum þörfum kaupenda.
Einn helsti kostur þessara íbúða eru rúmgóðar einkaverandir, með samtals 27,60 m² til 47,10 m² útisvæði. Sumar íbúðirnar eru með veröndum bæði að framan og aftan, sem skapa frábært rými til að slaka á, njóta máltíða undir berum himni eða eiga notalegar stundir með fjölskyldu og vinum.
Öllum íbúðum fylgir sérgeymsla og bílastæði, sem veitir aukin þægindi og hagkvæmni í daglegu lífi.
Verð frá 359.000 € til 409.000 €.
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan kost fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is