Glæsileg og nútímaleg lúxus parhús á tveimur hæðum í byggingu við í Los Alcatarez, aðeins um 500 metrum frá ströndinni.
Hér er aðeins eitt hús eftir á 499.000 evrur + kostnaður en allt er innifalið í verði eignar, sbr. húsgögn, einkasundlaug og öll tæki !
Frábær kaup og afhending eftir 12 mánuði.
Almennar upplýsingar.
Húsin eru 3 svefnherbergja og 2 baðherbergja á tveimur hæðum en að auki er hægt að hafa verönd á þaki. Húsin sjálf eru 141 fm en garðurinn er frá 254 fm til 300 fm. Á jarðhæð er opið eldhús sem tengist borðstofu/stofu en stórar rennihurðir eru á tvo vegu út í garðinn. Eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Á annari hæð eru svo 2 svefnherbergi og baðherbergi. Út frá svefnherbergi er gengið út á stórar svalir en út frá svölum er svo hægt að bæta við aðgengi að þaksvölum.
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is