Spánarheimili kynnir:
Þetta fallega einbýlishús á einni hæð er staðsett í íbúðahverfi við golfvöllinn La Serena, rétt fyrir utan Los Alcázares. Bærinn er þekktur fyrir rólegt andrúmsloft, Miðjarðarhafs-stemningu og fallegar strendur við Mar Menor.
Þetta er síðasta eignin af þessari gerð (Santorini), með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum. Hún er með einkasundlaug, snýr til suðurs og er seld með húsgögnum. Húsin eru með mjúkum, bogadregnum línum sem gefa þeim miðjarðarhafslegan stíl. Hægt er að bæta við sólarverönd gegn 20.000 € aukakostnaði, sem innifelur stiga og geymslu.
Í bænum er að finna alla helstu þjónustu og svæðið er einnig nálægt nokkrum þekktum golfvöllum.
Verð: 550.000 €
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is