Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Fallega endurnýjað raðhús við Campoamor golfvöllinn
Eignin er vel skipulögð með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Núverandi eigendur hafa endurnýjað húsið og er það því tilbúið til innflutnings án frekari framkvæmda.
Einn helsti kostur eignarinnar eru fjölbreytt og sólrík útisvæði. Fyrir framan húsið er notaleg verönd og að aftan er verönd sem býður upp á næði og ró.
Á efri hæð eru svalir frá hjónaherberginu og þaðan er stigi upp þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar allt árið um kring og með útsýni yfir grænu svæðin í kring.
Í miðju íbúðakjarnans er sameiginleg sundlaug sem umkringd er vel hirtum gróðri og skapar notalega stemningu fyrir íbúa og gesti.
Staðsetningin er frábær fyrir golfáhugafólk þar sem Campoamor og Las Ramblas golfvöllurinn er í örfárra mínútna fjarlægð. Einnig eru vinsælar strendur Orihuela Costa, svo sem Campoamor, Cabo Roig og La Zenia, aðeins í stuttri akstursfjarlægð. Veitingastaðir, verslanir og öll helsta þjónusta eru nokkrum mínútum frá
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is