Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir: Flott íbúð sem er staðsett í einstöku hverfi í Punta Prima, aðeins örfá skref niður að strönd og stutt er í næstu veitingastaði og þjónustur á svæðinu.
Fallegur íbúðakjarni með grænum svæðum og sameiginlegum sundlaugum sem eigendur hafa afnot af.
Gengið er inn í forstofu með skápum fyrir yfirhafnir og þaðan er eldhúsið sem er opið að hluta til stofu og frá eldhúsinu er þvottahúsið
Frá stofunni er aðgengi út á svalirnar sem eru með útsýni yfir græna sameiginlega garðin og borðstofa með stórum skápum
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og annað herbergið eru en suite, með sér baðherbergi og svo er eitt annað baðherbergi með sturtu
Það fylgir einnig einkabílastæði í bílakjallara.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is