Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Falleg og vel skipulögð efri sérhæð í lokuðu íbúðahverfi með sameiginlegri sundlaug í San Miguel de Salinas.
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, bjartri stofu og eldhúsi sem er opið. Frá stofu er gengið út á suðursvalir og þar er stigi upp á stórar einkaþaksvalir með útieldhúsi
Í sameigninni er falleg sundlaug og snyrtilegt umhverfi. Eignin selst með húsgögnum og hentar vel bæði sem heilsársbúsetu og sumarhús á Costa Blanca.
Um svæðið:
San Miguel de Salinas er notalegur spænskur bær á suðurhluta Costa Blanca, aðeins um 10 km frá ströndum Orihuela Costa. Stutt er í vinsæla golfvelli, verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard og Torrevieja.
Í bænum er öll þjónusta, meðal annars matvöruverslanir, veitingastaðir, apótek, heilsugæsla og skólar. San Miguel hefur haldið sínum spænska bæjarbrag en á sama tíma hefur svæðið vaxið töluvert undanfarin ár.
Mikil uppbygging nýrra íbúða og íbúðahverfa á sér nú stað í og við San Miguel, sem endurspeglar aukinn áhuga á svæðinu. Fjölmörg nýbyggingarverkefni eru ýmist í framkvæmd eða sölu.