Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Íbúðir með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum í nýja íbúðaverkefninu Nature í San Miguel, sem skera sig úr fyrir rúmgóðar verandir og stór útisvæði.
Allar íbúðirnar eru 80,34 m² að byggðu flatarmáli, með veröndum sem byrja í um 59 m² og ná allt að 156,81 m² í ákveðnum útfærslum. Sumar eignir eru yfir 240 m² að heildarflatarmáli, sérstaklega íbúðir á jarðhæð með stórum útisvæðum.
Í boði eru íbúðir sem snúa til austurs og vesturs, frá jarðhæð og upp á sjöundu hæð. Mismunandi hæðir bjóða upp á verandir af ólíkum stærðum, þar á meðal valkosti með yfir 100 m² verönd á efri hæðum. Öllum íbúðum fylgir einnig sérmerkt bílastæði.
Verð frá 259.900 € upp í 389.900 €
Um svæðið:
San Miguel de Salinas er dæmigert spænskt þorp. Það er staðsett á hæsta punkti í héraði sínu, í suðurhluta Costa Blanca. Bærinn nýtur fallegs útsýnis yfir saltvötnin í Torrevieja og yfir víðáttumikla sítrónu- og appelsínulundi í nágrenninu, sem gerir svæðið sérstaklega hentugt bæði fyrir fasta búsetu og styttri dvalir.
Helstu atvinnugreinar íbúanna eru þjónusta og landbúnaður, þar á meðal ræktun sítróna, melóna og ólífa. Þorpið hefur einstakan miðjarðarhafsblæ, þar sem hægt er að njóta vikulegs markaðar, heimsækja staðbundnar verslanir og taka þátt í hátíðum sem haldnar eru reglulega. Til dæmis er San Miguel-dagurinn haldinn árlega, þann 29. september, og hátíðarhöld hefjast viku fyrr.
Matarmenning heimamanna einkennist af hefðbundnum og næringarríkum sveitamat, þar á meðal „gazpacho manchego“, matarmiklum rétti úr tómötum, sérstöku brauði og grænmeti ásamt kanínukjöti, hrísgrjónum og soði.
Allt þetta, og margt fleira, gerir bæinn að einum vinsælasta áfangastaðnum fyrir þá sem leita að heimili undir sólinni eða vilja njóta frís á Miðjarðarhafsströndinni. Öll þjónusta er innan seilingar í þessu litla og heillandi þorpi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is