Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir: Glæsilega 135fm íbúð á efstu hæð með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum í Lomas de Campoamor. Frábær staðsetning í rólegu og eftirsóttu hverfi við Campoamor golfvöllinn og er í göngufæri frá allri helstu þjónustu og veitingastöðum í nágrenninu.
Um er að ræða íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir einnig 50fm einkabílastæði í bílakjallara ásamt sameiginleguum garði með sundlaug.
Íbúðin samanstendur af glæsilegri rúmgóðri stofu með mikilli lofthæð að hluta, stóru eldhúsi með aðgengi að þvottahúsi, svölum sem snúa til suðvestur, góðri geymslu, eitt fullbúið gesta baðherbergi og þremur svefnherbergjum, öll herbergin með góðu skápaplássi og þar af hjónasvíta með sér baðherbergi. og góðum fataskápum.
Íbúðin hefur verið þónokkuð endurnýjuð, þ.m.t. gestabaðherbergið algjörlega tekið í gegn. Nýtt rafmagn dregið í og nýjir frontar. Eignin er hituð með ofnum sem þýðir að hitakostnaður er lár. Nýtt aircontæki er í stofu og búið að yfirfara tækin í herbergjunum. Nánast öll heimilistæki eru ný fyrir utan bakaraofn og helluborð. Moskítóhlerar fyrir öllum gluggum.
Um er að ræða einstakelga rúmgóða eign á frábærum stað og í hverfinu er 24 tíma öryggisgæsla.
Eigandi skoðar skipti á sumarbústað eða mögulega fasteign á Íslandi.
Nánar um svæðin:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is