Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Síðustu íbúðina sem enn er laus í þessari glæsilegu nýbyggingarkynningu í nútímalegu íbúðahverfi í Torrevieja.
Um er að ræða glæsilega þakíbúð með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum sem einkennist af björtum og rúmgóðum rýmum ásamt stórkostlegri einkasólverönd (solarium). Íbúðin er hluti af vel hönnuðu íbúðahverfi þar sem áhersla er lögð á þægindi og vellíðan íbúa.
Meðal sameiginlegrar aðstöðu má nefna stóra sundlaug, fallega og vel hirta garða, líkamsræktaraðstöðu og einkabílastæði.
Afhending er áætluð 30. júní 2026.
Verð: 399.000 €
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is