Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Þessi íbúð á jarðhæð er staðsett við Vistabella Golf og er með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, opnu eldhúsi inn í stofu og 17,42 m² verönd sem er lokuð með glerhurðum. Þannig er hægt að nýta rýmið allt árið, til dæmis sem borðstofu, setusvæði eða aukastofu.
Íbúðin er með rafmagnsmarkísu, flugnanetum í gluggum og auknu geymslurými á veröndinni.
Eitt helsta einkenni eignarinnar er útisvæðið, en henni fylgir 94,46 m² einkagarður. Framgarðurinn snýr í suðaustur og fær morgunsól, auk þess sem þar er einkabílastæði innan lóðarinnar. Þar er einnig geymsluskúr úr áli. Bakgarðurinn snýr í suðvestur og nýtur síðdegis- og kvöldsólar, með beinum aðgangi að sameiginlegum svæðum og sameiginlegri sundlaug.
Staðsetningin er hentug þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Matvöruverslun, veitingastaðir, barir, líkamsræktarstöð, apótek og aðrar verslanir eru í um 450 metra fjarlægð, en Vistabella Golf golfvöllurinn er í um 1,2 km fjarlægð.
Verð: 265.000 €
Um svæðið:
Vistabella Golf er glæsilegur 18 holu golfvöllur staðsettur á Costa Blanca svæðinu á Spáni. Völlurinn er hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum og býður upp á vel hirtar brautir, breið svæði og fallegt landslag. Á svæðinu eru einnig veitingastaðir, barir, líkamsræktarstöð og matvöruverslun, ásamt fjölbreyttri þjónustu sem gerir Vistabella að frábærum stað fyrir bæði íbúa og ferðalanga. Svæðið er rólegt og fjölskylduvænt með góðu aðgengi að ströndum, stærri bæjum og helstu þjónustu á Costa Blanca.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is