Spánarheimili kynnir: Síðustu eignina, tilbúna til afhendingar í þessum kjarna á Vistabella Golf, íbúðahverfi sem er öryggisvaktað 24/7 og er í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Orihuela Costa. Fallegt golfvallarumhverfi með öllum þægindum svo sem verslunum, veitingastöðum og fyrsta flokks aðstöðu til íþróttaiðkana. Hverfið er mjög vel tengt við helstu bæi í nágrenninu.
Um er að ræða efri sérhæð með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, eldhús sem er opið við stofu þaðan sem útgengt er út á svalir. Einnig eru rúmgóðar þaksvalir þar sem hægt er að njóta veðurblíðunnar allt árið um kring.
Í kjarnanum eru rúmgóð sameiginleg svæði og sundlaug með aðskildu barnasvæði.
Um svæðið: Vistabella Golf er glæsilegur 18 holu golfvöllur staðsettur á Costa Blanca svæðinu á Spáni. Völlurinn er hannaður fyrir kylfinga á öllum getustigum og býður upp á vel hirtar brautir, breið svæði og fallegt landslag. Á svæðinu eru einnig veitingastaðir, barir, líkamsræktarstöð og matvöruverslun, ásamt fjölbreyttri þjónustu sem gerir Vistabella að frábærum stað fyrir bæði íbúa og ferðalanga. Svæðið er rólegt og fjölskylduvænt með góðu aðgengi að ströndum, stærri bæjum og helstu þjónustu á Costa Blanca.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is