Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Nýbyggðar villur við Santa Rosalía Lake, með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum og 114,28 m² byggðu flatarmáli. Húsin standa á lóðum sem eru á bilinu 219,99 m² til 244,36 m² og eru með góð útisvæði sem henta vel til að njóta veðurfarsins á svæðinu.
Hver villa er með 19 m² verönd, einkagarð sem er á bilinu 121 m² til 149 m² og einkasundlaug, 5 x 2,40 m. Á útisvæðinu er einnig yfirbyggt svæði og hellulagt bílastæði.
Eldhúsið afhentist með Johnson heimilistækjum, þar á meðal ísskáp, spanhelluborði, háfi, örbylgjuofni, bakarofni og uppþvottavél. Einnig fylgir inni- og útilýsing, að undanskilinni skrautlýsingu.
Einnig er möguleiki á að bæta við 76,50 m² kjallara fyrir 17.500 €, með aðgengi og möguleika á frágangi, þar á meðal forlögn fyrir rafmagn og vatn ásamt flísalögðu gólfi.
Verð frá 459.900 € til 474.900 €
Nánar um svæðið:
Santa Rosalía er einstakt svæði á Costa Cálida sem hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir stærsta manngerða lón í Evrópu og glæsilega innviði svæðisins. Strandbærinn Los Alcázares er í stuttri fjarlægð og þar er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða, verslana og þjónustu.
Santa Rosalía Lake & Life Resort er sérstaklega hannað fyrir lífsstíl sem sameinar afslöppun, útivist og þægindi. Á svæðinu eru stór græn svæði, göngu- og hjólaleiðir, íþróttaaðstaða, leiksvæði, strandblaksvellir, padelvellir og fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Miðpunktur svæðisins er hið glæsilega kristaltæra lón þar sem hægt er að njóta strandlífs og vatnaíþrótta allt árið um kring, ásamt glæsilegu klúbbhúsi með veitingastað og líkamsrækt.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is