Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Einstakt einbýlishús í Santa Rosalía Lake & Life Resort – lúxus, lífsstíll og sólin allt árið um kring
Velkomin í eitt eftirsóttasta íbúðarsvæði Spánar – Santa Rosalía Lake & Life Resort í Murcia. Hér býðst einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt einbýlishús á lokuðu og öruggu svæði.
Húsið er hannað með áherslu á birtu, rými og þægindi. Opið alrými tengir saman stofu, borðstofu og eldhús á fallegan hátt og stórir gluggar hleypa inn náttúrulegri birtu allt árið. Útisvæðið býður upp á einkasundlaug, rúmgóða verönd, og fullkomna aðstöðu til að njóta spænska loftslagsins með fjölskyldu og vinum.
Santa Rosalía Resort hefur vakið mikla athygli fyrir stórkostlegt manngert kristaltært lón, fallega garða, göngu- og hjólaleiðir, íþróttaaðstöðu og fyrsta flokks þjónustu. Svæðið er vaktað allan sólarhringinn og býður upp á einstakt öryggi og friðsælt umhverfi.
Staðsetningin er frábær, aðeins örfáar mínútur frá ströndum Mar Menor, fjölmörgum golfvöllum, veitingastöðum og þjónustu
Nánar um svæðið:
Santa Rosalía er einstakt svæði á Costa Cálida sem hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir stærsta manngerða lón í Evrópu og glæsilega innviði svæðisins. Strandbærinn Los Alcázares er í stuttri fjarlægð og þar er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða, verslana og þjónustu.
Santa Rosalía Lake & Life Resort er sérstaklega hannað fyrir lífsstíl sem sameinar afslöppun, útivist og þægindi. Á svæðinu eru stór græn svæði, göngu- og hjólaleiðir, íþróttaaðstaða, leiksvæði, strandblaksvellir, padelvellir og fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Miðpunktur svæðisins er hið glæsilega kristaltæra lón þar sem hægt er að njóta strandlífs og vatnaíþrótta allt árið um kring, ásamt glæsilegu klúbbhúsi með veitingastað og líkamsrækt.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is