Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir: Glæsileg einbýlishús á einni hæð. Húsin eru staðsett í Daya Nueva, friðsælum stað þar sem rólegt miðjarðarhafsumhverfi sameinast nálægð við fallegustu strendur Costa Blanca.
Húsin eru á einni hæð og bjóða upp á 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með mikilli lofthæð sem skapar einstaka rýmistilfinningu, á meðan opið eldhúsið tengist á fallegan hátt við alrýmið. Stórir gluggar hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu og aðalsvefnherbergið er með sérbaðherbergi og möguleika á glæsilegu fataherbergi (walk-in closet). Tvö rúmgóð' svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.
Utandyra er 18 m² einkasundlaug, fullkomin til að slaka á og njóta hins einstaka loftslags á Costa Blanca allt árið um kring. Einnig er möguleiki á að bæta við einkasólverönd (solarium) sem veitir aukið útisvæði til sólbaða og afslöppunar.
Verð frá 388.000 € upp í 453.000 €.
Einungis tvö hús eftir.
Um svæðið
Daya Nueva er friðsæll bær í hjarta Vega Baja-héraðsins, suður af Alicante. Þar er að finna alla helstu þjónustu til daglegs lífs, svo sem matvöruverslanir, veitingastaði, kaffihús, íþróttaaðstöðu og aðra nauðsynlega þjónustu.
Aðeins 10 mínútna akstur er að vinsælum sandströndum Guardamar del Segura og La Marina, sem eru þekktar fyrir langar sandstrendur og fallegt náttúrulegt sandaldnalandslag.
Frábær staðsetning tryggir greiðan aðgang að A-70 og AP-7 hraðbrautunum, sem tengja svæðið við borgir á borð við Elche, Torrevieja og Alicante. Einnig er aðeins um 25 mínútna akstur að Alicante–Elche alþjóðaflugvellinum, sem gerir staðsetninguna einstaklega hentuga bæði sem fasta búsetu og orlofshús.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is