Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir: Síðasta húsið! Þetta er síðasta tækifærið til að eignast glæsilegt nýbyggt raðhús í þessari vinsælu framkvæmd í Daya Nueva, heillandi bæ sem sameinar rólegt líf í miðjarðarhafsumhverfi og stutta fjarlægð í fallegar strendur og alla helstu þjónustu á Costa Blanca.
Húsið er á tveimur hæðum og býður upp á 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Á neðri hæð er rúmgóð og björt stofa og borðstofa með opnu eldhúsi, eitt svefnherbergi með fataskápum og sérbaðherbergi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi til viðbótar, bæði með innbyggðum fataskápum, ásamt öðru fullbúnu baðherbergi.
Utandyra er 18 m² verönd og einkasundlaug, fullkomið svæði til að slaka á og njóta hins frábæra loftslags á Costa Blanca allt árið um kring.
Verð: 317.000 €
Um svæðið
Daya Nueva er friðsæll bær í hjarta Vega Baja-héraðsins, suður af Alicante. Þar er að finna alla helstu þjónustu til daglegs lífs, svo sem matvöruverslanir, veitingastaði, kaffihús, íþróttaaðstöðu og aðra nauðsynlega þjónustu.
Aðeins 10 mínútna akstur er að vinsælum sandströndum Guardamar del Segura og La Marina, sem eru þekktar fyrir langar sandstrendur og fallegt náttúrulegt sandaldnalandslag.
Frábær staðsetning tryggir greiðan aðgang að A-70 og AP-7 hraðbrautunum, sem tengja svæðið við borgir á borð við Elche, Torrevieja og Alicante. Einnig er aðeins um 25 mínútna akstur að Alicante–Elche alþjóðaflugvellinum, sem gerir staðsetninguna einstaklega hentuga bæði sem fasta búsetu og orlofshús.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is