Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Nýbyggð raðhús í glæsilegum íbúðakjarna í Torrevieja.
Eignirnar eru á tveimur hæðum og bjóða upp á 3 rúmgóð svefnherbergi og 3 fullbúin baðherbergi. Byggingarstærð er 115,65 m² og hefur hver eign verið hönnuð með nútímalegu yfirbragði þar sem lögð er áhersla á birtu, rými og þægindi.
Á lóð hverrar eignar er einkasundlaug og bílastæði innan lóðarmarka. Þá fylgja einnig glæsilegar þaksvalir (solarium) sem eru 41,50 m² að stærð og bjóða upp á frábæra möguleika til að njóta sólarinnar allt árið um kring.
Í sameiginlegum svæðum íbúðakjarnans er stór sundlaug, fallega hirt græn svæði og líkamsræktaraðstaða fyrir íbúa.
Afhending er áætluð 31. desember 2026.
Verð frá 550.000 € til 600.000 €.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is