Spánarheimili kynnir:
Íbúð í eftirsóttum íbúðarkjarna, Terrazas de campoamor sem er staðsettur í Lomas de Cabo Roig. Stutt er í vetingastaði matvörubúð og fleiri þjónustur á svæðinu.
Flottur íbúðarkjarni sem samanstendur af sameiginlegum görðum með barnaleiksvæði, sameiginlegri sundlaug
Um er að ræða íbúð á fyrstu hæð með tveimur svefnherbergjum, einu baðherbergi og eldhúsi sem er opið til stofu og frá stofu er aðgengi út á svalir sem hafa útsýni yfir sameiginlegu sundlaugina
Það fylgir einnig einkabílastæði með íbúðinni
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.