Spánarheimili kynnir: Frábær raðhús í Avileses í Murcia. Avileses er snyrtilegur og rólegur bær á milli Balsicas og Sucina í Murcia. Stutt er í flest alla þjónustu og aðeins um 10 mínútur að keyra á næsta golfvöll.
Um er að ræða 10 raðhús og verður hver eign með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergum ásamt einkasundlaug, þaksvölum og bílastæði inni á lóð. Eignirnar eru á 2 hæðum og á jarðhæð er stórt og rúmgott eldhús opið við stofu og borðstofu. Frá stofu er gengið út á rúmgóða verönd þar sem er einkasundlaug og fullkomið grillsvæði. Einnig er eitt svefnherbergi og baðherbergi á jarðhæð. Á annarri hæð eru 2 svefnherbergi og annað þeirra er master svíta og er með einkabaðherbergi.
Verð 279.900 €.
Tilbúin til afhendingar
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is