Markaðsvirði eignar
Kr18.800.000Prósentuupphæð:
Lánatímabil (ár)
Vextir
Niðurstöður:
Mánaðarlegar greiðslur:
Kr. 2.796.45Lánsfjárhæð:
15.000.000Eigið fé:
15.000.000Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar
Spánarheimili kynnir:
Frábærar bankaeignir á Hacienda del Álamo Golf Resort kjarnanum. Um er að ræða eignir sem voru byggðar 2012 en aldrei verið búið í. Bankaeign þýðir að framkvæmdaraðili fór í þrot og eignaðist viðskiptabanki viðkomandi aðila eignirnar. Bankinn hefur svo opnað á sölu á viðkomandi eignum sem Spánarheimili bjóða nú til kaups á hreint frábærum verðum.
Um er að ræða stóra neðri sérhæð í parhúsa lengju.
Eignin er í Oasis hverfinu sem samanstendur af fallegum eignum í miðjarahafs stíl.
2 svefnherbergi og 2 baðherbergi ásamt borðstofu og setustofu þar sem opið er inn í eldhús.
Baðherbergin eru stór og með tvöföldum vöskum. Hægt er að ganga út á veröndina sem snýr í norður frá borðstofu og líka hjónaherbergi. Á veröndinni er heitur pottur og beint aðgengi á sameiginlegan garð með sundlaug og sólbaðsaðstöðu.
Á Oasis svæðinu eru margar sameiginlegar sundlaugar, græn svæði og leiksvæði fyrir börn.
Stærð íbúðar er 109 m2.
Nánar um svæðið:
“Hacienda del Álamo Golf Resort” er einstakt svæði, staðsett suðvestur
í Murcia og er mörgum íslenskum golfurum vel kunnugt.
Um er að ræða lokað og vaktað svæði en innan svæðisins má meðal annars finna glæsilegt klúbbhús, hótel & spa, veitingastaði, matvöruverslanir, tennis
og padel velli og hjólastíga en svo er heimsklassa golf æfingaaðstaða þar sem finna má 36 sláttubása, grasteiga, vippflöt, tvær púttflatir og 6 holu æfingavöll.
18 holu golfvöllurinn sjálfur er rómaður sem einn af betri golfvöllum Murcia héraðs en hann er
par 72 og er 6724 m. Þess má geta að æfinga bækistöð íslenska landsliðsins í golfi er einmitt á Hacienda Del Álamo.
Stutt í allt:
Þó svo að um golfsvæði sé að ræða að þá er af nógu að taka þegar það kemur að annarri afþreyingu. Svæðið er vel staðsett með tilliti til margra þátta, má td. nefna að bærinn Fuente Alamó sem er spænskur bær með sínum sjarma er eingöngu
í 7 mínutna aksturfjarlægð,
gullnu strendurnar í Mazzarón eru í 20 mínutna akstursfjarlægð og innan við 30 mínutur tekur að keyra til Murcia eða td. strandborgarinnar Cartagena.
Til Torrevieja er svo rétt um 45 mínutna akstur.
Rétt norður af Hacienda del Álamo eru fjöllin Sierra Espuña sem er draumasvæði útivistarfólks, hvort sem það vill ganga, hjóla eða njóta fallegrar nátturu.
Svo eru ekki nema um 15 mínutur til nýja alþjóðaflugvallarins í Murcia.