Aftur á yfirlitssíðu

Einbýli
Prenta Eign
Tilvísunarnúmer: 1427
€. 700.000

Hágæða villa í San Miguel de Salinas

Kr105.200.000
Söluverð eignar er í evrum en umreiknast til viðmiðunar yfir í íslenskar krónur á skráðu gengi hvers dags.
Fermetrastærð 134 fm
Fjöldi svefnherbergja 4 svefnherbergi
Fjöldi baðherbergja 4 baðherbergi
42 km
7 km
-
3 km

Markaðsvirði eignar

Kr105.200.000

Prósentuupphæð:

Lánatímabil (ár)

Vextir

Niðurstöður:

Mánaðarlegar greiðslur:

Kr. 2.796.45

Lánsfjárhæð:

15.000.000

Eigið fé:

15.000.000

Ofangreindar forsendur miðast við mögulega hámarks veðsetningu í gegnum spænska banka svo og hámarks lánstíma. Lánstíminn miðast þó við að síðasti gjalddagi láns verður að vera við 75 ára aldur lántakanda. Vaxtaprósentan ákvarðast af hálfu bankans eftir greiðslugetu og fjárhagslegri stöðu lántakanda hverju sinni. Veðsetningarhlutfall banka miðast við söluverð eigna án tillits til kostnaðar

Kæling/kynding
Einkagarður/Verönd
Einkasundlaug
Sameiginleg sundlaug
Upphituð sundlaug
Lyfta í húsinu
Húsgögn fylgja
Lokaður kjarni
Svalir
Gólfhiti
Nýbygging
Bílskúr
Þak svalir
Sér inngangur
Geymsla
Sjávarútsýni
Lýsing:

Spánarheimili kynnir:

Hágæða villa sem snýr í suðausturátt og er staðsett í Bellavista íbúðarkjarna á milli notalega bæjarins San Miguel og Las Colinas Golf & Country Club. Stutt er í næstu þjónustu og veitingastaði og er 10-15 mínútum frá næstu strendum á Orihuela Costa svæðinu.

137 m2 einbýli sem skiptist í 3 hæðir með upphækkaðri jarðhæð, miðhæð og á efstu hæð er rúmgóð sólarverönd.

Á jarðhæð má finna bjarta og rúmgóða stofu með nútímalegu eldhúsi. Einnig má finna eitt svefnherbergi með einkabaðherbergi og eitt gestasalerni á jarðhæðinni.

Frá stofunni er aðgengi út á stóra og sólríka verönd með flott útieldhús og einkasundlaug sem er upphituð á veturnar.

Á annarri hæð má finna hin þrjú svefnherbergi, hjónaherbergið með einkabaðherbergi og hin tvö deila stóru baðherbergi. Frá hjónaherberginu er aðgengi út á stórar svalir með fallegu útsýni af miðjarðarhafinu og saltvatninu í Torrevieja.

Á efstu hæð er þakverönd með sólarplötum sem framleiða nóg af rafmagni á sumrin fyrir alla eignina.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og [email protected]

Staðsetning eignar:
SKOÐUNARFERÐIR:
Spánarheimili býður upp á 7 daga skoðunarferðir til Spánar og er þá flug og gisting innifalin. Verð 119.900 kr.  Athugið að kostnaður við skoðunarferð fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef að kaupum verður. Spánarheimili bókar flugið og sendir viðskiptavininum nokkra valmöguleika með gistingu.


    FJÁRMÖGNUN OG KOSTNAÐUR VIÐ KAUP

    10% IVA (spænskur söluskattur) leggst ofan á kaupverð fasteignar og þarf kaupandinn ávalt að gera ráð fyrir þeim kostnaði svo og um 3-6% í áætlaðan stimpil-, þinglýsingar- og umsýslukostnað til opinberra yfirvalda. Þessir skattar og opinberu gjöld eru ávalt greidd hjá Notaria á Spáni þegar gengið er frá afsali.

    Spænskir bankar bjóða upp á allt að 70% fasteignaveðlán með 2,5 til 4,5% óverðtryggða vexti og ef kaupandi fjármagnar kaupin með lántöku verður hann að gera ráð fyrir lánstökukostnaði auk stimpil- og umsýslukostnaði vegna lánsins.