Blogg

Vinsælir alþjóðlegir skólar á Costa Blanca og Costa Cálida

Vinsælir alþjóðlegir skólar á Costa Blanca og Costa Cálida

Upplýsingar

Hvernig eru skólarnir á svæðinu?

Þegar fólk skoðar nýjan lífsstíl á Spáni skiptir máli að allt í kringum fjölskylduna gangi upp fyrir flutninga - ekki bara fasteignin sjálf. Skólar, umhverfi, þjónusta og daglegt líf eru einnig stór hluti af ákvörðuninni.

Á Costa Blanca og Costa Cálida er að finna fjölda alþjóðlegra skóla sem hafa verið vinsælir hjá bæði heimamönnum og aðfluttum fjölskyldum. Margir skólanna kenna samkvæmt bresku eða alþjóðlegu námsskránni og leggja áherslu á fjölbreytt og nútímalegt námsumhverfi.

Við höfum tekið saman upplýsingar um vinsæla international skóla á svæðinu til að auðvelda fjölskyldum að fá betri yfirsýn yfir möguleika sem standa til boða.

Skólar á Costa Blanca

1. Willow International School – Ciudad Quesada

Willow er breskur skóli í Ciudad Quesada fyrir börn frá 3 - 18 ára aldurs. Skólinn er þekktur fyrir hlýlegt andrúmsloft og persónulega nálgun þar sem er lögð áhersla á bæði námsárangur og vellíðan barna.

Kennslan fer fram á ensku en einnig með áherslu á spænskunám í alþjóðlegu umhverfi.

Vinsæl svæði nálægt skólanum:

• Ciudad Quesada

• Doña Pepa

• Benijófar

• Rojales

Þetta eru vinsæl svæði hjá fjölskyldum sem vilja góðan lífsstíl, alþjóðlegt samféla þar sem er stutt í skóla og þjónustu.

2. Phoenix International School – San Miguel de Salinas

Phoenix er minni og persónulegri skóli með mjög hlýlegt samfélag og lítið nemendahlutfall á hvern kennara. Margir foreldrar velja skólann vegna þess hversu mikil áhersla er lögð á persónulega athygli og stuðning við nemendur.

Vinsæl svæði nálægt:

• San Miguel de Salinas

• Los Montesinos

• Orihuela Costa

• Torrevieja

Þessi svæði höfða mikið til þeirra sem vilja rólegra líf, meira pláss og góðan balans á milli strandar og hversdagslífs.

3. El Limonar International School – Villamartin

El Limonar er einn þekktasti international skólinn á suðurhluta Costa Blanca og fylgir bæði breska og spænska skólakerfinu.

Skólinn er vinsæll hjá fjölskyldum sem vilja alþjóðlegt umhverfi, sterkan námsgrunn og góðan undirbúning fyrir framtíðina.

Vinsæl hverfi nálægt:

• Villamartín

• La Zenia

• Campoamor

• Playa Flamenca

Svæðin eru sérstaklega vinsæl vegna nálægðar við strönd, golfvelli, góðra þjónustu og fjölskylduvæns umhverfis allt árið.

4. King´s College – The British School of Alicante

King’s College er einn þekktasti breski alþjóðlegi skólinn á Costa Blanca og hefur byggt upp afar sterkt orðspor á Spáni.

Skólinn er þekktur fyrir öflugt akademískt nám, alþjóðlegt samfélag og framúrskarandi aðstöðu.

Vinsæl svæði nálægt:

• Alicante

• Playa San Juan

• Muchamiel

• El Campello

Þessi svæði hentar þeim sem vilja blanda saman borgar- og strandlífi ásamt því að búa við góða þjónustu allt árið um kring.

5. AIS Altea International School – Alfaz del Pi

AIS Altea er skóli með heildræna nálgun þar sem áhersla er lögð á sköpun, náttúru og vellíðan samhliða námi.

Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi með útsýni yfir fjöll og Miðjarðarhafið.

Vinsæl svæði nálægt:

• Alfaz del Pi

• Albir

• Altea

• La Nucía

• Benidorm-svæðið

Svæði þar sem náttúra, sjór, fjöll og rólegt fjölskyldulíf fara einstaklega vel saman.

6. Elian´s British School – La Nucia

Elian's er breskur skóli fyrir börn frá 1–18 ára staðsettur í La Nucía, rétt fyrir ofan Benidorm.

Skólinn býður bæði upp á breskt og spænskt nám ásamt IB Diploma Programme.

Vinsæl svæði nálægt:

• La Nucía

• Benidorm

• Altea

• Albir

• Calpe

Hentar vel fjölskyldum sem vilja rólegt umhverfi nálægt náttúru og strönd en hafa einnig góða þjónustu við hendina.

Skólar á Costa Cálida

1. New Castelar College – San Pedro del Pinatar

New Castelar College er tvítyngdur skóli þar sem kennt er bæði á ensku og spænsku.

Skólinn hefur byggt upp sterkt orðspor á Murcia-svæðinu og er vinsæll hjá bæði erlendum og spænskum fjölskyldum.

Vinsæl svæði nálægt:

• San Pedro del Pinatar

• Los Alcázares

• Santiago de la Ribera

• Torre-Pacheco

Svæðið er þekkt fyrir rólegt fjölskyldulíf, fallegar strendur við Mar Menor og hlýlegt samfélag.

2. El Limonar International School – Murcia

El Limonar Murcia er systurskóli El Limonar í Villamartín og fylgir sama sterka akademíska kerfi með bæði breskum og spænskum námsleiðum.

Vinsæl svæði nálægt:

• El Palmar

• La Alberca

• Murcia borg

• Los Alcázares

Góður kostur fyrir fjölskyldur sem vilja vera nálægt borgarlífi en samt með auðveldan aðgang að ströndinni.

3. King´s Collage – The British School – Murcia

King's College Murcia er hluti af sama alþjóðlega skólasamfélagi og King's College Alicante.

Skólinn er staðsettur á La Torre Golf Resort og hefur orðið sífellt vinsælli hjá fjölskyldum á Murcia-svæðinu.

Vinsæl svæði nálægt:

• Roldán

• Torre-Pacheco

• Los Alcázares

• Mar Menor-svæðið

Svæði sem hafa vaxið mikið undanfarin ár og höfða til fjölskyldna sem vilja rólegt umhverfi, góða þjónustu og mikið af útivist.

Viðskiptavinir eru ekki bara að leita að fasteign á Spáni

Þegar fólk tekur ákvörðun um að flytja eða kaupa sitt annað heimili á Spáni snýst ákvörðunun oftast um miklu meira en bara fasteignina sjálfa.

Fyrir flesta skiptir máli hvernig daglegt líf mun líta út – hvernig samfélagið er, umhverfið, skólarnir, þjónustan og hvernig fjölskyldan sér fyrir sér að aðlagast nýjum lífsstíl.

Þess vegna fáum við oft spurningar um skóla, hverfi og fjölskyldulíf á Costa Blanca og Costa Cálida en ekki bara um fasteignirnar sjálfar - Þegar fjölskyldan er ánægð verður Spánardraumurinn enn betri.

Ef þú hefur einhvern tímann velt þessu fyrir þér erum við alltaf til staðar til að ræða möguleikana með þér - engin pressa, bara gott samtal, reynsla og leiðsögn fyrir þig og þína fjölskyldu.

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að skoða hvað gæti hentað ykkur best.


Fleiri myndir

Hafa samband

Data Controller: Spanarheimili SL, Purpose of Processing: Management and control of the services offered through the Real Estate Services website, Sending information through newsletters, and others, Legitimacy: By consent, Recipients: The data will not be transferred, except for accounting purposes, Rights of Interested Parties: Access, rectify, and delete data, request data portability, object to processing, and request limitation of it, Source of Data: The Data Subject, Additional Information: Additional and detailed information on data protection can be found Here.
Phone Mail