Elche CF spilar í efstu deild á næsta tímabili "La Liga"
Upplýsingar
Elche CF mun áfram leika í efstu deild spænska fótboltans, La Liga, á næsta tímabili – frábær tíðindi fyrir stuðningsmenn félagsins og alla sem fylgjast með liðinu.
Eftir krefjandi og oft á tíðum spennuþrungið tímabil hefur Elche tryggt sér áframhaldandi veru meðal bestu liða Spánar og endar í 15. sæti deildarinnar. Það verður að teljast afar góður árangur í einni sterkustu deild heims þar sem risar á borð við Barcelona og Real Madrid hafa lengi ráðið ríkjum.
Tímabilið hjá Elche hefur verið upp og ofan, með bæði sterkum köflum og erfiðum tímum. Liðið hefur þó sýnt mikinn karakter, samheldni og baráttuvilja þegar mest á hefur reynt. Að halda sæti sínu í La Liga er sérstaklega mikilvægt fyrir félag sem er að festa sig aftur í sessi í efstu deild og hefur þurft að berjast gegn fjárhagslega sterkari félögum með mun stærri leikmannahópa.
Lokaleikur tímabilsins gegn Girona á útivelli í gær, 23. maí var sannkallaður úrslitaleikur með gríðarlega miklu undir.
Girona þurfti sigur til að halda sæti sínu í deildinni á meðan Elche vissi að jákvæð úrslit gætu tryggt áframhaldandi sæti í efstu deild. Spennan var mikil frá fyrstu mínútu og úrslitin réðu miklu fyrir bæði félögin. Nú er ljóst að Girona fellur niður í næstefstu deild, Hypermotion á meðan Elche heldur áfram í efstu deild á meðal þeirra bestu.
Elche hefur á að skipa skemmtilegu og vel spilandi liði með marga spennandi leikmenn sem hafa vakið athygli á tímabilinu. Félagið hefur byggt upp lið sem leggur áherslu á samspil, vinnusemi og baráttugleði – eiginleika sem hafa skilað sér í mikilvægum stigum þegar mest á hefur reynt. Að halda sæti sínu í einni mest krefjandi deild heims er því mikið afrek og gefur stuðningsmönnum ríka ástæðu til bjartsýni fyrir næsta tímabil.
Fyrir þá sem vilja upplifa stemninguna á heimaleikjum Elche á eigin skinni má einnig minna á að Spánarheimili geta aðstoðað sína vildarvini við að útvega miða á heimaleiki félagsins á næsta tímabili – einstakt tækifæri til að upplifa spænska boltann í sinni tærustu mynd en Elche er í aðeins um 25 mínutna fjarlægð frá flugvellinum í Alicante og 40 mínutur frá Torrevieja borg.