Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Stórglæsileg og björt þakíbúð á eftirsóttum stað í Villamartín í litlu og þægilegu fjölbýli og sem er í göngufæri við La Fuente verslunarkjarnann þar sem finna má fjölbreytt úrval veitingastaða, verslana og afþreyingu.
Íbúðin er 98 m² og er með á þrjú rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, opið eldhús og bjarta stofu. Meðfram allri íbúðinni eru mjög rúmgóðar 65 m² suður svalir sem bjóða upp á stórkostlegt víðáttumikið útsýni yfir fallegt landslag og umhverfi svæðisins. Yfir öllum svölunum eru rafdrifnar markísur sem geta veitt kærkominn skugga á sólríkum dögum.
Íbúðin er staðsett í lokuðum íbúðarkjarna með fallegum sameiginlegum garði þar sem má finna sundlaug leikvelli og fleira.
Eigninni fylgir einkabílastæði og sérgeymsla í bílakjallara og það er lyfta í húsinu sem tryggir þægilegt aðgengi að íbúðinni.
Staðsetningin er frábær, með fjölbreytta veitingastaði, verslanir og alla helstu þjónustu í næsta nágrenni. Aðeins um 2 km eru á næsta golfvöll og stutt er á nokkra af vinsælustu golfvöllum Costa Blanca. Fallegar sandstrendur Orihuela Costa eru einnig í um 4 km fjarlægð.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.