Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Glæsileg 3ja svefnherb. íbúð á efri hæð í eftirsóttum íbúðakjarna í Villamartín. Stutt er í allar helstu þjónustur á svæðina og ásamt Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni
Kjarninn samanstendur af íbúðum á efri og neðri sérhæðum og við miðju er snyrtilegt svæði þar sem þú finnur sameiginlegu sundlaug kjarnans. Það er einnig bílakjallari þar sem fylgir einkabílastæði og geymsla með íbúðinni.
Íbúðin er 105 m² að stærð og skiptist í þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stofan og eldhúsið eru í opnu alrými og frá stofunni er gengið út á 27 m² svalir sem horfir út á sundlaugina. Það eru einnig 89 m² þaksvalir með útieldhúsi og þar ertu með sjávarútsýni og hægt er að njóta sólarinnar í góðu næði
Villamartín er vinsælt svæði á Orihuela Costa, þekkt fyrir golfvelli, veitingastaði, verslanir og fjölbreytta þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.