Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegt einbýlishús með einkasundlaug í Lomas de Cabo Roig
Vel staðsett einbýlishús í Lomas de Cabo Roig sem er í göngufæri frá veitingastöðum, börum og matvörubúð. Einnig er stutt á næstu strönd á Cabo Roig og stutt í vinsælu verslunarmiðstöðina Zenia Boulevard
Eignin er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum og fallegu útisvæði með einkasundlaug, sem býður upp á góða möguleika til að njóta sólarinnar og útiverunnar allt árið um kring.
Húsið er með einkagarði, opinni verönd og rúmgóðri þakverönd þar sem hægt er að koma sér upp notalegu svæði til sólbaða og slökunar.
Cabo Roig er vinsælt svæði á Orihuela Costa, þekkt fyrir fallegar strendur, veitingastaði og fjölbreytta þjónustu í næsta nágrenni. Staðsetningin hentar vel þeim sem vilja njóta lífsins
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.