Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Þetta glæsilega nýbyggingarverkefni býður upp á nútímalegar íbúðir í raðhúsastíl á jarðhæð og fyrstu hæð, með 2 eða 3 svefnherbergjum, sem henta fjölbreyttum þörfum kaupenda.
Íbúðirnar á jarðhæð eru með rúmgóðum einkaveröndum, fullkomnum til að njóta útiveru, slaka á eða eiga notalegar stundir með fjölskyldu og vinum.
Íbúðirnar á fyrstu hæð eru hins vegar með bæði einkaverönd og rúmgóða einkaþakverönd (solarium), sem býður upp á frábært aukarými til að njóta sólarinnar og hins yndislega loftslags svæðisins.
Í sameiginlegum garði íbúðasamstæðunnar er sundlaug til afnota fyrir íbúa. Að auki fylgir öllum íbúðum einkabílastæði utandyra, sem veitir aukin þægindi í daglegu lífi.
Nánar um svæðið:
Los Alcázares er heilsulindarbær, staðsettur við strönd Mar Menor og státar af sjö kílómetra strandlengju frá Los Narejos til Punta Brava. Mar Menor er saltvatnslón 128 ferkílómetrar að stærð er hiti 5 gráðum yfir því sem er í Miðjarðarhafinu. Merkilegt nokk en svæðið er tiltölulega óþekkt og telst eitt best geymda leyndarmál Spánar. Allar strendurnar á svæðinu tengjast með stórkostlegum gönguleiðum. Þær eru fullbúnar með sturtum, gosbrunnum, aðgengi fyrir fatlaða. En þar má einnig iðka vatnsíþróttir og strandleiki. Landslag þar um slóðir er tiltölulega flatt sem gerir Los Alcázares ákjósanlegan kost fyrir þá sem hafa gaman að hjólreiðum og öðrum íþróttum eins og golfi. Tveir afar góðir golfvellir eru á staðnum: La Serena Golf og Roda Golf. Fjölbreytt úrval fasteigna er á svæðinu alveg frá íbúðum upp í stór einbýlishús en allar eignirnar standa í nálægð við strönd, golf og góða þjónustu.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is