Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir: Fjarkahús á einni hæð rétt við Slatvötnin í Torrevieja. Rúmgóð verönd góðar einka þaksvalir og stutt er hér í alla helstu þjónustu og veitingastaði.
Um er að ræða fjarkahús á einni hæð með tveimur svefnherbergjum, einu baðherbergi, eldhúsi sem er opið við stofu og sér þvottahúsi. Einnig fylgir húsinu rúmgóð geymsla og sameiginlegur sundlaugagarður.
Húsið hefur verið mikið endurnýjað að undanförnu m.a. settur gólfhiti í allt húsið. Eldhús og baðherbergi tekið í gegn. Rafmagn yfirfarið og nýleg rafmagnstafla. Í stofu er nýlegt aircon tæki. Hitakútur,ísskápur,eldavél,bakaraofn og uppþvottavél eru ný. Það er flugnanet í svefnherbergis gluggum og á baði. Nýleg útihúsgögn fylgja með ásamt tveimur reiðhjólum. Allur húsbúnaður fylgir með nema persónulegir munir og verkfæri í geymslu fylgir einnig.
Vel staðsett hús með tilliti til allrar þjónustu og í nálægð við hin vinsælu saltvötn í Torrevieja.
Nánar um svæðin:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is