Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Fallegt og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, staðsett í rólega kjarna í Lomas de Cabo Roig með þjónustur og veitingastaði í nágreninu.
Á neðri hæð er björt og rúmgóð stofa með borðstofu, vel búið eldhús, eitt svefnherbergi og baðherbergi. Frá stofunni er gengið út á rúmgóða verönd sem snýr að sameiginlega sundlaugargarðinum.
Á efri hæð eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóðar svalir með fallegu útsýni yfir garðinn. Loftkæling er í öllum svefnherbergjum.
Eignin er staðsett í fallegu og fjölskylduvænu lokuðu íbúðarsvæði með stórum sundlaugargarði, barnalaug og leiksvæði fyrir börn. Frábær eign fyrir þá sem leita að góðu heimili eða sumarhúsi á Spáni.