Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Glæsilegt nýbyggingarverkefni með nútímalegum raðhúsum á frábærum stað á Costa Blanca.
Raðhúsin eru á tveimur hæðum og hvert þeirra er með glæsilegri einkaþakverönd þar sem hægt er að njóta spænsku sólarinnar allt árið um kring. Hvert hús býður upp á 3 rúmgóð svefnherbergi og 3 eða 4 baðherbergi, með vel skipulögðu rými sem sameinar nútímalega hönnun, birtu og þægindi.
Húsin eru 90,5 m² að stærð og standa á lóðum frá 174,3 m² upp í 213,8 m². Hönnunin leggur áherslu á björt alrými og fallegt flæði milli innirýmis og útisvæða sem skapar notalegt heimili fyrir daglegt líf jafnt sem frí.
Aðeins um 600 metrar eru að fallegum sandströndum Orihuela Costa og stutt í golfvelli, veitingastaði, verslun, La Zenia Boulevard og alla helstu þjónustu sem gerir svæðið einstaklega eftirsótt fyrir bæði fasta búsetu og orlof.
Í íbúðakjarnanum verður glæsileg sameiginleg sundlaug og fallega hönnuð sameiginleg útisvæði. Sum raðhúsanna verða einnig með einkasundlaug sem veitir aukin þægindi, meira næði og einstaka upplifun.
Verð frá 695.000 € til 715.000 €
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is