Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Nýbyggð raðhús á tveimur hæðum með 3 rúmgóðum svefnherbergjum og 2 fullbúnum baðherbergjum. Húsin eru frá 185,12 m² upp í 205 m² að stærð og hafa verið hönnuð með áherslu á björt, hagnýt og vel skipulögð rými sem uppfylla kröfur nútímalífs.
Eignirnar standa á lóðum frá 112 m² upp í 118 m² og hver villa er með sína eigin einkasundlaug. Einnig er hægt að sérsníða eignina með ýmsum aukabúnaði sem eykur bæði þægindi og verðmæti hennar. Hægt er að bæta við glæsilegri einkasólverönd (solarium) fyrir 16.900 € og innbyggðum nuddpotti (jacuzzi) í sundlaugina fyrir 5.000 €.
Verð frá 369.000 € til 470.000 €.
Nánar um svæðið
Algorfa er lítill bær í Alicante-héraði sem staðsettur er á bökkum árinnar Segura. Fólk sem hefur heimsótt Algorfa finnur þar fullkominn stað fyrir heimili við strandlengjuna. Hinn frægi La Finca-golfklúbbur er staðsettur í þessum bæ sem auk annarrar þjónustu rekur fimm stjörnu hótel og verslunarsvæði þar sem má finna úrval veitingastaða. Eitt helsta aðdráttarafl Algorfa er fjölbreytt fasteignaúrval sem í boði er; íbúðir af öllu tagi, raðhús og einbýli. Framfærsla og lífsstíll er á vel viðráðanlegu verði í bænum.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is