Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir:
Heillandi einbýlishús á eftirsóttum stað í Benijófar á Suður-Costa Blanca.
Eignin er á tveimur hæðum og býður upp á björt og vel skipulögð rými. Hún samanstendur af 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, sem eru hönnuð með þægindi og næði að leiðarljósi.
Aðalrými hússins er rúmgóð og björt stofa og borðstofa í opnu skipulagi, sem tengist eldhúsinu á fallegan og nútímalegan hátt. Frá stofunni er beinn aðgangur út á veröndina, sem skapar skemmtilegt flæði milli inni- og útisvæða.
Utandyra er einkasundlaug þar sem hægt er að njóta sólríkra daga allt árið um kring. Eignin býður einnig upp á glæsilegar þarksvalir (solarium), fullkominn stað til að njóta sólarinnar, slaka á eða eiga notalegar stundir með fjölskyldu og vinum undir berum himni.
Verð: 299.000 €
Nánar um svæðið:
Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði.