Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spánarheimili kynnir: Síðustu íbúðirnar á jarðhæð í þessu nýbyggða íbúðahverfi í Torrevieja.
Íbúðirnar eru með 2 rúmgóðum svefnherbergjum og 2 fullbúnum baðherbergjum. Íbúðirnar eru frá 72,77 m² upp í 75,60 m². Sérstaklega ber að nefna glæsilegar einkaverandir sem eru frá 30,20 m² upp í 47,20 m² og bjóða upp á frábæra útivistaraðstöðu.
Íbúðahverfið býður upp á fallega sameiginlega sundlaug og vel hirt græn svæði sem skapa rólegt og fjölskylduvænt umhverfi.
Öllum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu og einnig er mögulegt að kaupa geymslu gegn aukagjaldi sem veitir aukið geymslurými.
Verð frá 270.900 € til 287.000 €.
Eignirnar eru afhentar í Desember 2026.
Nánar um svæðið:
Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is