Reiknaðu áætlaðar mánaðarlegar greiðslur
Spanarheimili kynnir:
Glæsilegar villur á tveimur hæðum með kjallara, staðsettar í fremstu línu við lónið í Santa Rosalía Lake & Life Resort.
Þessar stórkostlegu villur eru 217,40 m² að stærð á 300 m² lóðum, með 3 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum. Villurnar bjóða upp á fullbúinn kjallara með enskum garði sem veitir náttúrulega birtu, einkasundlaug með fossi, gazebo útisvæði og glæsilega einkaþakverönd með sumareldhúsi þar sem hægt er að njóta sólarinnar allt árið um kring.
Eignirnar afhendast með fullbúnu eldhúsi ásamt raftækjum, foruppsetningu fyrir miðstýrðu loftkælikerfi og yfirbyggðu bílastæði innan lóðar.
Verð frá 890.000 €.
Nánar um svæðið:
Santa Rosalía er einstakt svæði á Costa Cálida sem hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir stærsta manngerða lón í Evrópu og glæsilega innviði svæðisins. Strandbærinn Los Alcázares er í stuttri fjarlægð og þar er að finna fjölbreytt úrval veitingastaða, verslana og þjónustu.
Santa Rosalía Lake & Life Resort er sérstaklega hannað fyrir lífsstíl sem sameinar afslöppun, útivist og þægindi. Á svæðinu eru stór græn svæði, göngu- og hjólaleiðir, íþróttaaðstaða, leiksvæði, strandblaksvellir, padelvellir og fjölbreytt afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Miðpunktur svæðisins er hið glæsilega kristaltæra lón þar sem hægt er að njóta strandlífs og vatnaíþrótta allt árið um kring, ásamt glæsilegu klúbbhúsi með veitingastað og líkamsrækt.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimili og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is