Spánarheimili kynnir:
Flott íbúð á efri hæð í rólegum íbúðarkjarna í Quesada. Stutt er að nálgast matvörubúð, veitingastaði og aðrar þjónustur á svæðinu. Ciudad Quesada er bær sem 15 minútum frá Torrevieja og um 30 mínútum frá Alicante flugvellinum.
Um er að ræða íbúð á efri hæð með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Íbúðin er hönnuð í nútímalegum stíl þar sem eldhús er opið til stofu. Frá stofunni er aðgengi á svalir sem horfa yfir sameiginlega garðin við miðju kjarnans og þar er stór sameiginleg sundlaug.
Frá svölunum er stigi upp á stórar þaksvalir þar sem þú getur notið sólina í rólegheitum allan daginn.
Nánar um svæðið:
Ciudad Quesada – Rojales er staðsett um það bil 8 kílómetra inni í landið frá Costa Blanca við Guardamar de la Segura. Alicante- og Murcia-flugvellir eru báðir í 50 kílómetra fjarlægð og næsta strönd er í innan við 10 mínútna akstursfjarlægð. Miðbær Ciudad Quesada er vel búinn verslunum, börum, veitingastöðum, golfvelli og eigin vatnagarði. Einbýli og raðhús eru fyrirferðamesti hluti fasteignaframboðsins í Quesada, en einnig er það að finna gott úrval íbúða. Framboðið er einkar heillandi: Gæði á góðu verði.