Spánarheimili kynnir:
Glæsileg penthouse íbúð í eftirsótta kjarnanum Flamenca Village í Playa Flamenca. Einstakur íbúðakjarni sem sameinast af vel hirtum görðum, nokkrum sameiginlegum sundlaugum og einnig upphitaða sundlaug, líkamsræktaraðstöðu, sundlaugarbar og afslöppunarsvæði sem skapa sannkallaða „resort“ stemningu allt árið um kring
Kjarninn er á frábærum stað í Playa Flamenca og er í göngufæri frá ströndinni ásamt vinsæla laugardagsmarkaðnum og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni
Um er að ræða íbúð á efstu hæð með einkaþaksvölum. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi
Þegar gengið er inn þá er bjart alrými með stofu/borðstofu með hálfopnu eldhúsi og frá eldhúsinu er þvottahús. Gengið er út á rúmgóðar svalir frá stofunni og þar er útsýni yfir sameiginlega garðin.
Það er stigi upp á einkaþaksvalir frá stofunni og þar er notalegt útisvæði þar sem hægt er að njóta sólarinnar og útsýnið.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.