Spánarheimili kynnir:
Fallegt ráðhús með einstakt útsýni í Lomas de Cabo Roig, göngufjarlægð frá veitingastöðum, matvörubúð og stutt frá ströndinni og göngugötunni í Cabo Roig.
Um er að ræða eign á tveimur hæðum með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Eignin snýr í suður og er með sól allan daginn. Það er notaleg verönd að framan með einstakt útsýni yfir svæðið í kring og alveg niður að Miðjarðarhafinu
Gengið er inn í opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi sem er með aðgengi út á litla verönd sem leiðir síðan út í sameiginlega garð með sundlaug.
Það er eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi á jarðhæðinni og tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi á efri hæðinni. Frá öðru herberginu er aðgengi út á svalir sem eru með enn betra útsýni.
Þegar það er gengið niður stigan frá jarðhæðinni tekur við stór og mikil geymsla og einkabílastæði í bílakjallara.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.