Spánarheimili kynnir: Glæsilega efri hæð sem staðsett er í fallegum kjarna í Los Balcones með útsýni yfir saltvötnin.
Um er að ræða endaíbúð á efri hæð með stórum einkaþaksvölum með útsýni yfir saltvötnin í Torrevieja.
Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, eldhús er opið við stofu þar sem útgengt er út á svalir og þaksvalir.
Stórt einkabílastæði og geymsla í bílakjallara og síðan eru tvær sameiginlegar sundlaugar í kjarnanum sem eigendur hafa afnot af.
Nánar um svæðið:
Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is