Spánarheimili kynnir: Glæsileg parhús á tveimur hæðum við La Serena golfvöllinn í Los ALcazares.
Um er að ræða nútímalega og björt hús á tveimur hæðum með frábæru skipulagi. Húsin eru á bilinu 99 m² til 110,60 m². Húsin bjóða upp á þrjú svefnherbergi, tvö fullbúin baðherbergi og tvö gestabaðherbegi. Eldhús er opið við stofu/borðstofu þaðan sem útgengt er út á verönd. Lóðirnar eru frá 176,66 m² til 397,16 m² sem veitir nægt pláss utandyra fyrir garð eða tómstundasvæði. Einnig koma húsin með einka þaksvölum á bilinu 29,30 m² til 33 m² tilvaldar til að njóta sólarinnar eða búa til þitt eigið chill-out svæði.
Hverju húsi fylgir einkasundlaug og bílastæði innan lóðar. Innan kjarnans er boðið upp á æfingarsal fyrir íbúa samfélagsins.
Einstaklega vel staðsett hús sem sameina friðsæld náttúrunnar með þægindum nálægrar þjónustu.
Verð frá 439.000 € til 790.000 €
Um svæðið:
Los Alcázares er bær við strendur Mar Menor, um 20 mínútum frá La Zenia eða í átt að Cartagena. Þetta er rólegur spænskur bær sem býður upp á margvíslega þjónustu, veitingastaði og strendur. Roda Golf er golfvöllur í nágrenni við bæinn.
Espacio Mediterráneo er stór verslunarmiðstöð um 20 mínútum frá Los Alcázares eða við borgina Cartagena, þar sem hægt er að finna veitingastaði, fataverslanir, matvöruverslanir, húsgagnaverslanir og fleira.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is