Spánarheimili kynnir: Nýjan kjarna af vel skipulögðum efri og neðri sérhæðum í Pilar de la Horadada.
Íbúðirnar eru 90 m² með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Eldhús er opið við stofu þaðan sem útgengt er á svalir eða verönd.
Íbúðir á koma með s rúmgóðum einkaveröndum frá 73 m² upp í 115,28 m², fullkomnar til að njóta útiveru, samveru eða slökunar. Að auki fylgir geymsla með hverri íbúð.
Íbúðirnar á efri hæð bjóða upp á glæsilegar þaksvalir upp á 93,52 m², tilvaldar til að njóta sólarinnar allt árið um kring, og hafa 2 geymslur, sem veitir aukin þægindi og gott geymslupláss.
Íbúðasamstæðan er fullkomnuð með fallegri sameiginlegri sundlaug, sameiginlegum svæðum sem hönnuð eru fyrir alla fjölskylduna og einkabílastæðum fyrir hverja íbúð.
Verð frá 359.900 € til 389.900 €
Um svæðið:
Pilar de la Horadada er staðsett um það bil 3 kílómetra frá Torre de la Horadada. Það er aðeins 15 mínútna akstur frá, til dæmis, verslunarmiðstöðvunum Zenia Boulevard.
Það er staðsett í um 25 mínútna akstri norður af Murcia San Javier flugvellinum og um klukkustundar akstur suður af Alicante flugvellinum. Svæðið var áður að mestu leyti landbúnaðarsvæði, umkringt ávaxtagörðum, matjurtagarði, sítruslundum og býlum, en á undanförnum árum hefur það orðið að öflugu og aðlaðandi svæði sem má lýsa sem mjög miðsvæðis þegar litið er til stranda, golfvalla, verslana o.s.frv. Pilar de la Horada er syðsti bærinn á Costa Blanca og liggur að Murcia héraði og skemmtilegum strandbæjum eins og San Pedro og San Javier. Það er óhætt að segja að maður fái mikið fyrir peningana sína á þessu svæði
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is