Nýr kjarni af fallegum raðhúsum á 2 hæðum í Pilar de la Horadada. Í kjarnanum eru 32 eignir og er hver eign með 3 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Stutt er í næstu þjónustu og veitingastaði ásamt næstu strendur á svæðinu.
Á jarðhæð má finna nútímalegt eldhús sem er opið til stofu og borðstofu. Einnig er 1 svefnherbergi og 1 baðherbergi á jarðhæð. Frá stofunni/borðstofunni er gengið út á flotta verönd.
Á efri hæðinni eru 2 svefnherbergi sem eru bæði með svalir og eitt sameiginlegt baðherbergi.
Frá efri hæð er síðan stigi upp á þaksvalir þar sem er hægt að njóta sólarinnar allan ársins hring.
Í miðjunni á kjarnanum er að finna sameiginlega sundlaug og sólbaðsaðstöðu.
Gólfhiti er til staðar inni á baðherbergjum, eldhúsinu og stofunni.
Verð frá 325.000 €.
Tilbúnar til afhendingar júlí 2025
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimilia og í síma 5585858 og info@spanarheimili.is